17nóvember

www.blog.central.is/sandradogg



ok bæ :)
17. nóvember 2006 klukkan 19:45
Sandra Dögg
Engin athugasemd
17nóvember

Gera ţetta, plís

1. Hver ert þú?

2. Erum við vinir?

3. Hvenær hittumst við fyrst?

4. Ertu hrifin af mér?

5. Langar þér að kyssa mig?

6. Láttu mig hafa gælunafn og útskýrðu afhverju þú valdir það.

7. Lýstu mér í einu orði.

8. Hvernig leist þér á mig þegar þú sást mig fyrst?

9. Lýst þér ennþá þannig á mig?

10. Hvað minnir þig á mig?

11. Ef þú gætir gefið mér eitthvað, hvað myndi það vera?

12. Hversu vel þekkiru mig?

13. Hvenær sástu mig síðast?

14. Hefur þig einhvern tíma langað til að segja mér eitthvað en ekki getað það?

15. Ætlaru að setja þetta á bloggið þitt svo ég geti skrifað um þig?
17. nóvember 2006 klukkan 06:36
Sandra Dögg
1 athugasemd
16nóvember

Skítakuldi ..!!!

Brrrr... það er sko skítakuldi :(
Ég ætlaði að fara upp í Borgarnes í morgun en nei nei það er óveður á Kjalanesi... þannig að ég verð bara að treysta á að komast í fyrramálið til að taka mig til fyrir jeppaferðina !!
Kannski dobla ég Kristó til að renna þangað þegar hann er búinn að vinna í kvöld, ég ætla allavega EKKI að keyra.. er alveg skíthrædd !!! Ég bloggaði í gær á www.blog.central.is/sandradogg ef ykkur langar að lesa um skemmtilega umferðaróhappið mitt ;)
Allavega fór ég með Jóhönnu á BORAT í gær og þessi mynd er mesta SNILLD sem ég veit um.. ég hef aldrei séð mynd sem ég hlæ af ALLAN tímann..!!! :D:D Hún er sko hrikalega fyndin !


Þegar ég kom heim í gærkveldi fór ég að fikta í barnaland síðunni hennar Tobbu  http://barnaland.is/barn/41580 ef ykkur langar að sjá hvað þetta er orðið fínt hjá mér :D hehe
Váá ég er að drepast úr kulda.. þegar Nágrannar voru búnir í morgun skreið ég bara upp í rúm til Kristó og steinsofnaði.. hann vakti mig svo um tvö og þá fórum við e-ð að vesenast ;)
Ætla að kíkja til Tobbu veiku á eftir.. spörning hvort ég verði þá bara veik um helgina :S
Ég held að þessi bloggkerfi séu bæði jafn ófullkomin!!!!!!
Langar eiginlega að fara að blogga aftur á blog.central.is en æj veit það ekki !
Hafið það gott sætabollur :*

16. nóvember 2006 klukkan 22:23
Sandra Dögg
Engin athugasemd
13nóvember

Fyrsti í ađvenntu ;)

Hafið þið lesið DV sem kom út á föstudaginn eða fylgst með fréttunum í síðustu viku?
Ég var að lesa greinina um Ástu Lovísu, þvílík hetja. Ef þið vitið ekki hver hún er eða um hvað ég er að tala mæli ég með því að þið farið á www.123.is/crazyfroggy og lesið ykkur til um þetta.
Það er ótrúlega mikið af fólki á Íslandi sem er þekkt fyrir einhverja vitleysu... t.d. fyrir að vera ríkt, vera fréttamaður eða bara e-ð.
Í DV var gefið upp reiknisnr. til að styrkja Ástu sem í stuttu máli sagt er þrítug, einstæð, þriggja barna móðir sem þjáist af ólæknandi krabbameini. Reiknisnr: 0525-14-102510 Kt: 090876-5469
Mæli eindregið með því að þið styrkjið hana.
En allavega, í sama DV blaði var grein um Ingu Lind (fréttakonu) og kallinn hennar. Greinin var um bílana þeirra tvo, sem hvor um sig kostaði 20 milljónir. Hvað ætli þau styrki Ástu um mikinn pening?? Hmm.. Mér finnst persónulegra mun gáfulegra að nota peningana til að hjálpa öðrum heldur en að eiga ALLTOF dýra bíla.
Ég skora á þá sem eiga mikinn pening og eru að hugsa um að kaupa sér e-ð sem þeir hafa engin sérstök not fyrir, AÐ STYRKJA ÞESSA KONU !!!!!   Gera góða hluti, e-ð til að vera stollt af !!

Af mér er lítið sem ekkert að frétta, var að vinna á lau til 16.00 og fór þá til Rvk í matarboð hjá ömmu og afa Kristó í tilefni 50 ára gullbrúðkaups-afmæli þeirra =) Það var rosa gaman.
Um kvöldið fór ég svo í bústað til Huggu og þeirra og eru myndir komnar inn ef þið hafið áhuga á að skoða..!

Í dag var fyrsti í aðvenntu í vinnuni :D Ég þreif kaffistofuna, svo kom Einar og hellti upp á kaffi og við tókum eitt spil. Síðan kom Hildur í kaffi og þá kveiktum við á fyrsta aðventu kertinu.. sem var dökkgrænt.. svo borðuðum við jólasmákökur og ískalda mjólk ;)

Jæja held að þetta sé nóg í bili... sé ykkur síðar sykurpúðar

 Hugga sæta:)

 Rakel og Hreinn :)

 Ég og Ingi

13. nóvember 2006 klukkan 02:51
Sandra Dögg
2 athugasemdir
10nóvember

Fer mađur á túr einu sinni í mánuđi?

Ég fór út áðan með spottana af tjaldinu okkar og tjaldhælana, ég vona að ég hafi fest bílinn minn nógu vel til þess að hann verði ennþá í garðinum í fyrramálið.
Þarf nebblega að fara út á Skaga í hjúkrunarfræði í fyrramálið... við þjótum í gegnum 45 metra á sek... we can do it..  ég og hann , hann og ég.. við verðum að komast, til að læra, læra að hjúkra fólkinu, fólkinu sem festi ekki niður bílana sína..! Það er ekki okkur að kenna.
Kuldaboli er út um allt.. Herra Rommel líka.. hann er fyrir mér... nei hann er það ekki.

  Svona er þetta bara.. lítið við því að gera...

10. nóvember 2006 klukkan 06:13
Sandra Dögg
2 athugasemdir
08nóvember

abcdefg

AAAA!!!! Ég myndi handrota Max ef ég gæti.... oooohhhhh

 Hann er svo glataður að láta loka Steph inn á geðdeild :@ heimski kall.

*Þvílíkt bitur yfir sjónvarpsþætti.. hehe

Yfir í aðra sálma, ég kom í bæinn í gær eftir skóla og fór beint til Tobbu sætu:)
Hún eldaði rosa gott hakk og spagettí handa okkur ... um kveldið vorum við aðalega að skoða íbúðir... ég ætla að kaupa mér hús á Kirkjubæjarklaustri og láta flytja það hingað.. svo var annað í Bakkafirði sem kostaði ekki skít !!!
Það er nú ekkert að frétta af mér, er búin að vera að læra í LOL í allan morgun... var að klára verkefnið fyrst núna :/ Svo er leikur í kvöld, ég á svo lítinn pening að ég ætla bara að sjá til hvort ég mæti... á varla fyrir bensíni upp í Bgn.. sem betur fer á ég svo yndislega góða foreldra að þau borga allar ferðirnar í gegnum göngin..!

Ég nenni ekki að skrifa neitt hérna, jú ef einhver kann mikið á barnaland síðurnar má hann kenna mér????
Ætla í bakaríið að kaupa mér e-ð að éta..
08. nóvember 2006 klukkan 20:54
Sandra Dögg
1 athugasemd
06nóvember

Blogg fyrir gamla fólkiđ...

Hallóbb..!
Komst að því að mér þykir ekkert skemmtilegt að blogga.. :/
En ætla samt að reyna að koma nokkrum línum niður..!

Síðan ég bloggaði síðast hefur lítið skéð.. á fimmtudagskveldið fór ég með Kristó í heimsókn til ömmu hans og afa sem eiga btw 50 ára brúðkaupsafmæli í dag, held ég :D alger krútt :*
Svo kíktum við á Jóhönnu og Davíð, þar sem ég fékk þessa dýrindis pizzu ;) hehe
Á föstudagsmorguninn brunaði ég upp í Bgn og var svo mætt í vinnu rétt fyrir kl 12.00..
Kíkti svo heim til Huggu sætu um kveldið og var að spjalla við hana og Sonju þangað til það kom e-ð fleira fólk!
Mjög nice;)

 Hugga sætasta :*

Seinna um kvöldið fór ég svo á rúntinn með Rakel og Hrein og e-ð meira bull :D haha
Ætluðum á grímuball á Hvanneyri en það var ekki nógu mikill stemmari fyrir því enda vinna daginn eftir !
Var svo að vinna á laugardaginn og virkilega ógeðslega þreytt allan daginn eftir að hafa sofið 2 og hálfan tíma nóttina áður.. Eftir vinnu fór ég og hitti Kristó, hann fór svo upp í sveit að gera við bílinn en ég varð eftir að leika við Katrínu krútt :* Horfði svo á eina mynd með tengdó og við spjölluðum heillengi :D
Í gær kíktum við í heimsókn til Ingu og Bubba.. þegar Veronika Líf var sofnuð fórum við Inga í pottinn og vorum þar í svona klukkutíma eða e-ð... =) Það voru samt einhverjir pólverjar í pottinum og einn þeirra var alltaf að strjúka á mér lærið.. það var ógeðslegt ... =(=( Við vorum alltaf komnar lengra og lengra út í horn á pottinum...
Í gærkveldi var ég svo bara heima og las allt sem er að gerast í Glæstum Vonum næstu vikurnar hehe :D

Þarf að fara e-ð í bæinn í vikunni.. ætla að sækja bíómiðana á Borat myndina... fer samt örugglega ekkert á hana fyrr en í næstu viku því Kristó er að vinna á nætur/kvöld vöktum alla vikuna :D


 Held að ég hafi alveg húmor fyrir þessari mynd.. hehe
Annars á ég engan pening þannig að ég þarf að spara ótrúelga mikið.... á ekki einu sinni fyrir nagladekkjum!!!
Næstu helgi er svo sumarbústaðurinn með Huggu og stelpunum... ætli ég verði ekki bara edrú og kíki á fös og lau kvöldið.. taki svo að mér auka vinnu á laugardeginum.. annars veit ég það ekki... væri alveg til í að fara og djamma af mér rassgatið :D:D Kemur allt í ljós.. ég var allavegana búin að LOFA að mæta.. og ætla að standa við það ..!!!
Þar næstu helgi er ég svo að fara í jeppaferð með Kristó yfir alla helgina.. ég veit ekkert hvert við erum að fara .. en allavega er ég nok viss um að þetta verði rosa gaman.. gistum í einhverju húsi upp á fjöllum held ég :D:D

Ohh.. það kom pínu snjókoma áðan og þá hljóp ég inn í herbergi, vakti Kristó og sagði honum að nú yrði hann að gefa öllum jólagjafir fyrst það væri komin snjókoma.. hehe... hann ætlaði nebblega ekki að gefa neinum pakka nema það kæmi almennilegur snjór.. en það kemur bara með tímanum ;Þ

Ætla að fara og fá mér morgun/hádegis mat og horfa á Nágranna..!!!!

Heyrumst..

06. nóvember 2006 klukkan 18:09
Sandra Dögg
3 athugasemdir
03nóvember

hehe

Hæ hæ !!! Ég var að skoða síðuna hennar Valdísar áðan þar sem hún var að sýna mynd af sér frá 1. önn og svo núna og það var gegt mikill munur:D Datt í hug að gera það líka.. hahahahahahaha finnst ykkur einhver breyting?

     



    
03. nóvember 2006 klukkan 00:26
Sandra Dögg
2 athugasemdir
01nóvember

Barnaland.is

Eru þið ekki að grínast með þessar barnaland síður??
Maður verður að skélla myndunum bara inn þegar maður fer á fætur og þá verða þær kannski komnar inn þegar mar fer í háttinn!!!! Jesús.. ég er búin að vera í óratíma að hlaða inn nokkrum myndum... Er ekki til fljótlegri leið við þetta eða????

Annars er ég bara búin að vera að læra í dag.. fór svo í skólann .. fór í litun... og kíkti svo á litlu sætu mestu krúsídúllu frænku mína, Veroniku Líf... :D sæta sæta sko..

En ég er að fara í bæinn á morgun, þarf að passa Bjarna og Guðna annaðkvöld.. það verður fínt!
01. nóvember 2006 klukkan 06:04
Sandra Dögg
1 athugasemd
31október

Yfirlit..

Hæ sætu :)

Byrjum á íþróttunum, Man Utd er í fyrsta sæti - er sátt með það =D
Skallagrímur vann Hamar/Selfoss í gær ... mér fannst ssvvvooo leiðinlegt að sjá Byrd í vitlausu liði.. og til að bæta gráu ofan á svart er Ari liðstjóri í liðinu =/ Tveir góðir menn á vitlausum bekk.
EN það sem skiptir máli er að við unnum leikinn, byrjaði ekki nógu vel en virkilega góður seinni hálfleikur.

Hvað skólann varðar á ég að lesa kjörbók og skila ritgerð úr henni 1 nóv. Er komin á bls 100 af 263. Málið er bara að ég hata að lesa! Díses.. Svo skil ég ekkert í stærðfræðinni :S er strand.. þarf að fara að panta mér aukatíma!

Vá hvað Max pirrar mig þessa dagana.. lýsa Steph óhæfa til að taka eigin ákvarðanir um meðferð..
Svo er Harold alveg að tapa sér.. (er að tala um Nágranna) ;)

Æj sjáið greyið bílinn minn...


..pabbi var e-ð að skipta dekkjunum.. bíllinn er eins og belja á svelli þessa dagana :S ..
svo eru bremsurnar e-ð! skil ekki.. hehehe

Haha ég var að búa til hollustu nasl handa mömmu, og pabba finnst það eigi að hella rauðvíni yfir það :D
Það er mjög gott sko, og mjög hollt !

Var að vinna alla helgina og er að fara að vinna næstu helgi líka.. eða á fös og lau og svo á amma Rúna afmæli á sun og mér skilst það eigi að reyna að gera e-ð fyrir hana.!
Neyðist svo til þess að passa fyrir Tobbu á miðvikudagskveldið.. aþþí að ég er besta frænka hennar :D hihi

Hafið þið séð nýja blaðið "Ísafold" .. ? var að lesa e-ð um það.. og þar stóð að Unnur Birna segi frá því þegar fyrrverandi kærasti hennar ráðist á hana og fyrrverandi kærastann hennar.. ha? Betra að eiga nóg af fyrrverandi kærustum!!!!

Hvað er eiginlega málið með allar þessar nauðganir ? Eru þessir karlmenn virkilega það óheillandi að þeir geti ekki reddað sér að ríða án þess að nauðga einhverjum stelpum? :S  Þetta er ógeðslegt!
Skil ekki fólk sem leysir málin með ofbeldi.

En ég ætla ekki að blabbla mikið meira hérna.. enda þetta á nýjustu uppfinninguni hennar mömmu..


..tærnar á mér!!!! veeeiii!  Ég veit hún er bræt.
31. október 2006 klukkan 00:35
Sandra Dögg
Engin athugasemd

Ađalvalmynd

Gagnasafn

Auglýsing

Leikur dagsins

Leit

Innskráningar kubbur

Fiskur

Ţegar stjarna fiska er skođuđ hér kemur fram ađ ţú virđist eiga ţađ til ađ sýna viđbrögđ sem eru misskilin af fólkinu sem ţú umgengst ţessa dagana (um ţessar mundir og fram ađ áramótum). Ef einhver skađar ţig á tilfinningasviđinu áttu ţađ til ađ bregđast viđ međ ţví ađ svara í sömu mynt. Tileinkađu ţér ađ fyrirgefa náunganum og endurskođađu ávallt viđbrögđ ţín áđur en ţú segir hug ţinn. Fólk fćtt undir stjörnu fiska ţroskast hinsvegar eflaust mikiđ veturinn framundan ef ţađ gefur sér tíma međ sjálfinu. - Haltu hugsunum ţínum út af fyrir ţig og reyndu eftir fremsta megni ađ einblína einungis á ţađ sem ţykir jákvćtt og gefandi.

ATH!

Rímember tú dú the commentó and kvitting in the gestóbúkk hómís

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...